Það væsir ekki um raunveruleikastjörnuna og athafnakonuna Kim Kardashian um þessar mundir, en hún er stödd í borginni San José del Cabo í Mexíkó ásamt fríðu föruneyti.

Kardashian, sem er 44 ára, er vel þekkt fyrir að vera með dýran smekk og velur því ávallt það besta sem í boði er. Hún gistir á lúxushóteli í mexíkósku borginni, El Dorado Golf & Beach Club, þar sem nóttin kostar ríflega 200 þúsund krónur.
Raunveruleikastjarnan hefur gefið fylgjendum sínum á Instagram, sem telja hátt í 358 milljónir, skemmtilega innsýn í ferðalagið og deilt þó nokkrum myndum af sér á bikiníi einum klæða.
Kardashian deildi einnig myndum af sér ásamt vinkonum sínum, þeim Simone Harouche og Alison Slatter, og yngsta barni sínu, syninum Psalm, en hún á fjögur börn með fyrrverandi eiginmanni sínum, rapparanum Kanye West.