Skrúfar niður rúðuna til þess að skíta yfir mann

Dagmál | 30. janúar 2025

Skrúfar niður rúðuna til þess að skíta yfir mann

„Það er til fólk sem hatar hjólreiðafólk,“ sagði margfaldi Íslandsmeistarinn og hjólreiðakonan María Ögn Guðmundsdóttir í Dagmálum.

María Ögn, sem er 43 ára gömul, stendur á tímamótum á sínum ferli en hún hefur verið ein fremsta hjólreiðakona landsins undanfarna tvo áratugi.

Kenna manni lexíu

María hefur lent í ýmsu á hjólinu, sér í lagi þegar hún hjólar á umferðargötum landsins.

„Ég er mjög jákvæð týpa en það er oft kallað á mann og fólk hefur fyrir því að skrúfa niður rúðuna og skíta yfir mann,“ sagði María Ögn.

„Það er stundum keyrt alveg upp að manni til þess að kenna manni lexíu og maður hefur lent mjög oft í því. Mér finnst þetta skrítið.

Veit fólk ekki að ég á bíl sjálf? Fólk virðist ekki hugsa oft og tíðum og ég hef ekkert á móti bílum,“ sagði María Ögn meðal annars.

Viðtalið við María Ögn í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.

María Ögn Guðmundsdóttir.
María Ögn Guðmundsdóttir. Ljósmynd/María Ögn
mbl.is