Gómsæt jarðarber úr garðinum, hunang, granatepli og snyrtivörur frá MAC eru á meðal þess sem kveikja á kynferðislegri löngun og örvun hjá eldhúsgyðjunni og Íslandsvinkonunni Mörthu Stewart.

Hin 83 ára gamla Stewart greindi frá þessu í stuttu myndskeiði á Instagram-síðu sinni í gærdag, en færslan virðist vera samstarf við kanadíska snyrtivörurisann MAC.
Stewart sem er klædd í kremaðan silkislopp tekur stóran bita af jarðarberi, sleikir hunangsskeið er hún starir tælandi í myndavélina og bítur í granatepli áður en hún setur á sig varalit frá MAC á varirnar og segir: „Ég nota einungis vörur frá MAC.“
Myndskeiðið hefur vakið mikla athygli á Instagram og hafa hátt í 50.000 manns líkað við færslu Stewart, sem hefur ekki tapað kynþokkanum með aldrinum.
Stewart ferðaðist til Íslands í ágúst 2023 og heimsótti meðal annars súkkulaðigerðina Omnom ásamt Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú Íslands.