Íslenska útivistarmerkið 66°Norður lagði áherslu á tímalausa hönnun og gæði í útifatnaði á tískuvikunni í Kaupmannahöfn sem fram fór fyrr í vikunni. Fataframleiðandinn sýndi flíkur frá árunum 1950-2025 á sérstakri og óhefðbundinni sýningu sem bar heitið 99 ár - 867,815,464 klukkustundir.

Nafnið er táknrænt fyrir langa sögu fyrirtækisins sem er orðið 99 ára. Sýningin var miðpunktur á milli fortíðar, nútíðar og framtíðar þar sem bæði söguleg íslensk arfleið og nútímaleg hönnun byggð á nýjustu tækni og sjálfbærni verða í forgrunni.
Dregnar voru fram fjölmargar, sögulegar flíkur og sumar af þeim allt að 70 ára gamlar. Þarna mátti sjá fyrsta sjóstakkinn og fatnað frá ólympíuleikum. Sýningin bauð meðal annars upp á snertiskynjun, hljóðupplifun og íslenskan foss og veitti gestum innsýn í hönnunarferli og handverk fyrirtækisins á einstakan hátt.
Sýningin var haldin á Rådhuspladsen 37 og vakti mikla athygli en rúmlega þúsund gestir voru viðstaddir sýninguna. Þetta var í fyrsta skiptið sem 66°Norður tók þátt í tískuvikunni en fyrirtækið hefur rekið verslun í Kaupmannahöfn um nokkurt skeið.
Sýningin verður einnig haldin á Íslandi og í London síðar.