Fæði, klæði og húsnæði Ingu Sæland

Heimili | 31. janúar 2025

Fæði, klæði og húsnæði Ingu Sæland

Fólk sem er á besta aldri í dag hefur upplifað allar stærstu breytingar sem hafa orðið á heiminum síðustu áratugina. Elsta kynslóð þessa lands man til dæmis vel eftir því þegar Ísland var hernumið, sem olli mikilli angist og átti svo eftir að umturna lífi sveitamanna á lítilli eyju í Atlantshafi. Fyrst kom óttinn, svo fylltist bærinn skyndilega af vel lyktandi mönnum með vel klippt hár, fulla vasa af tyggjói og sígarettum. Í stað þess að fagna þessum glæsilegu herrum og þeirra innkomu í íslenskt samfélag fór karlpeningurinn upp á afturlappirnar. Íslenskar stúlkur, sem hrifust af þessum flottu gæjum, voru í framhaldinu úthrópaðar sem lauslætisdrósir. Þegar sagan er skoðuð hefur margt breyst til batnaðar í okkar samfélagi. Ekki bara það að konur séu í dag frjálsari og geti valið með hverjum þær deila rúmi heldur streymdu peningar inn í íslenskt hagkerfi á stríðsárunum og komu okkur út úr mestu vosbúðinni.

Fæði, klæði og húsnæði Ingu Sæland

Heimili | 31. janúar 2025

Marta María Winkel Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála mbl.is.
Marta María Winkel Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála mbl.is. Ljósmynd/Kári Sverriss

Fólk sem er á besta aldri í dag hefur upplifað allar stærstu breytingar sem hafa orðið á heiminum síðustu áratugina. Elsta kynslóð þessa lands man til dæmis vel eftir því þegar Ísland var hernumið, sem olli mikilli angist og átti svo eftir að umturna lífi sveitamanna á lítilli eyju í Atlantshafi. Fyrst kom óttinn, svo fylltist bærinn skyndilega af vel lyktandi mönnum með vel klippt hár, fulla vasa af tyggjói og sígarettum. Í stað þess að fagna þessum glæsilegu herrum og þeirra innkomu í íslenskt samfélag fór karlpeningurinn upp á afturlappirnar. Íslenskar stúlkur, sem hrifust af þessum flottu gæjum, voru í framhaldinu úthrópaðar sem lauslætisdrósir. Þegar sagan er skoðuð hefur margt breyst til batnaðar í okkar samfélagi. Ekki bara það að konur séu í dag frjálsari og geti valið með hverjum þær deila rúmi heldur streymdu peningar inn í íslenskt hagkerfi á stríðsárunum og komu okkur út úr mestu vosbúðinni.

Fólk sem er á besta aldri í dag hefur upplifað allar stærstu breytingar sem hafa orðið á heiminum síðustu áratugina. Elsta kynslóð þessa lands man til dæmis vel eftir því þegar Ísland var hernumið, sem olli mikilli angist og átti svo eftir að umturna lífi sveitamanna á lítilli eyju í Atlantshafi. Fyrst kom óttinn, svo fylltist bærinn skyndilega af vel lyktandi mönnum með vel klippt hár, fulla vasa af tyggjói og sígarettum. Í stað þess að fagna þessum glæsilegu herrum og þeirra innkomu í íslenskt samfélag fór karlpeningurinn upp á afturlappirnar. Íslenskar stúlkur, sem hrifust af þessum flottu gæjum, voru í framhaldinu úthrópaðar sem lauslætisdrósir. Þegar sagan er skoðuð hefur margt breyst til batnaðar í okkar samfélagi. Ekki bara það að konur séu í dag frjálsari og geti valið með hverjum þær deila rúmi heldur streymdu peningar inn í íslenskt hagkerfi á stríðsárunum og komu okkur út úr mestu vosbúðinni.

Síðan þá hafa lífskjör landsmanna haldið áfram að batna jafnt og þétt, allavega hjá þeim sem finnst gaman að bretta upp ermar og nenna að vinna. Allt til þess að geta komið sér upp þaki yfir höfuðið og lifað borgaralegu lífi.

TikTok-kynslóðin og Inga Sæland

Það runnu því á mig tvær grímur þegar aðili tengdur mér, sem er af TikTok-kynslóðinni, sagði að hann hefði pottþétt kosið Ingu Sæland í síðustu kosningum ef hann hefði haft kosningarétt í nóvember á síðasta ári. Hvers vegna í ósköpunum? spurði ég. Ég hef ekkert á móti Ingu Sæland sem persónu en ég hef haft efasemdir um skráningaraðferðir hennar og Flokks fólksins eins og kannski fleiri.

Inga Sæland hefur verið í fréttum í vikunni.
Inga Sæland hefur verið í fréttum í vikunni. Morgunblaðið/Eggert


Í ljós kom að slagorðið fæði, klæði og húsnæði hafði sogast svo vel inn í vitund TikTok-kynslóðarinnar að börn í 70 þúsund króna Nike-skóm, týndum og ótýndum, og í glansandi Moncler-úlpum voru farin að halda að Flokkur fólksins myndi leysa framtíðarvandamál í eitt skipti fyrir öll. Með því að kjósa Flokk fólksins myndu þau renna blíðlega og áreynslulaust út úr unglingaherbergi sínu inn í glæsiíbúð með upphengdu klósetti, síðum gluggum, sjálfvirkum bílskúrshurðaropnara og gólfhita. Þau gætu bara haldið áfram að hanga á TikTok, drukkið orkudrykki, troðið í vörina og látið foreldra sína aura á sig daglega til að fjármagna hið ljúfa líf. Inga Sæland myndi svo bara koma, sjá og sigra … og rétta fram hjálparhönd. Jafnvel þótt hún hafi verið á sextugsaldri þegar hún eignaðist sjálf húsnæði.

Kannski er það ekkert skrýtið að þessi TikTok-aðili sem er tengdur mér skuli hafa hugsað þetta því móðir hans var komin á fertugsaldur þegar hann fæddist. Hann hefur því aldrei orðið vitni að því þegar mamma átti ekki fyrir húsbréfunum og upplifði sig sem sigurvegara lífsins í hvert skipti sem hún náði að skipta einum kreditkortareikningi til að geta borgað inn á hitt kreditkortið sem var lokað. Þetta var ekki einangrað tilfelli heldur gerðist svo oft að það er gáfulegast að hætta að telja skiptin. En það má víst ekki tala um peninga og einhverja svona óþægilega hluti við börn nútímans því þá gætu þau upplifað kvíða. Allt færi í baklás og röðin á kvíðameðferðarstofunni myndi lengjast ennþá meira. Það gengur ekki því biðstofan rúmar ekki fleiri pabba með trommandi fætur og með merkjavörutrefla um hálsinn, eða hvað?

Hægt er að lesa Á besta aldri HÉR. 

Þórunn Elísabet Sveinsdóttir prýðir forsíðu Á besta aldri sem fylgir …
Þórunn Elísabet Sveinsdóttir prýðir forsíðu Á besta aldri sem fylgir Morgunblaðinu í dag.
mbl.is