Máli foreldra gegn kennurum vísað frá

Kjaraviðræður | 31. janúar 2025

Máli foreldra gegn kennurum vísað frá

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað kröfu foreldra gegn Kennarasambandi Íslands um að verkfallsaðgerðir sem beindust að fjórum leikskólum hafi verið ólögmætar frá dómi en úrskurður var kveðinn upp rétt í þessu. Sambandið var einnig sýknað af miskabótakröfu foreldranna. 

Máli foreldra gegn kennurum vísað frá

Kjaraviðræður | 31. janúar 2025

Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands.
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað kröfu foreldra gegn Kennarasambandi Íslands um að verkfallsaðgerðir sem beindust að fjórum leikskólum hafi verið ólögmætar frá dómi en úrskurður var kveðinn upp rétt í þessu. Sambandið var einnig sýknað af miskabótakröfu foreldranna. 

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað kröfu foreldra gegn Kennarasambandi Íslands um að verkfallsaðgerðir sem beindust að fjórum leikskólum hafi verið ólögmætar frá dómi en úrskurður var kveðinn upp rétt í þessu. Sambandið var einnig sýknað af miskabótakröfu foreldranna. 

Aðalmeðferð málsins var á miðvikudag og fékk málið flýtimeðferð. 

Forsaga málsins er að hóp­ur for­eldra barna á þeim fjór­um leik­skól­um þar sem farið var í ótíma­bundn­ar verk­fallsaðgerðir ákvað að stefna Kenn­ara­sam­band­inu til að fá úr skorið hvort aðgerðirn­ar stæðust lög.

Um er að ræða leik­skól­ana Drafnar­stein í Reykja­vík, Holt í Reykja­nes­bæ, Ársali á Sauðár­króki og leik­skóla Seltjarn­ar­ness.

Gísli Guðni Hall lögmaður les úrskurðinn.
Gísli Guðni Hall lögmaður les úrskurðinn. mbl.is/Eyþór

Úrskurðurinn þýðir að verkfallsaðgerðir kennara munu hefjast á ný á morgun nema að samþykkt verði innanhústillaga ríkissáttasemjara sem lögð var fram í gær. Hafa samninganefndir til klukkan 13 á morgun til þess að taka afstöðu til tilögunnar. 

Verði tillögunni neitað verður starfsemi í leikskólunum lögð niður en auk þess mun verkfallið ná til tíu annarra leikskóla og sjö grunnskóla.

Verkfallsaðgerðirnar í grunnskólunum verða tímabundnar en sem fyrr verða þær ótímabundnar í leikskólunum.

Fréttin hefur verið uppfærð

Úr dómsal í dag.
Úr dómsal í dag. mbl.is/Eyþór
mbl.is