„Óttalegt væl í þessum þingmönnum“

Spursmál | 31. janúar 2025

„Óttalegt væl í þessum þingmönnum“

Hanna Katrín Friðriksson, nýr atvinnuvegaráðherra, situr fyrir svörum í nýjasta þætti Spursmála. Margir stórir málaflokkar heyra undir ráðuneyti hennar, allt frá innlendri matvælaframleiðslu á sjó og landi til ferðaþjónustu og iðnaðar af öðru tagi.

Í þættinum er Hanna Katrín meðal annars spurð út í afstöðu sína og Viðreisnar til strandveiða sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur gert að forgangsatriði í starfi sínu.

Þátturinn var sýndur hér á mbl.is fyrr í dag en upptöku af honum má nálgast í spilaranum hér að ofan, á Spotify og Youtube, og er hún öllum aðgengileg.

Systkin fara yfir stöðuna

Auk Hönnu Katrínar mæta systkinin Kristín Gunnarsdóttir, hlaðvarpsstjórnandi þáttarins Komið gott, og Þórður Gunnarsson hagfræðingur í settið til að fara yfir helstu fréttir líðandi viku. Undanfarna daga hefur Kristín verið orðuð við formannsframboð í VR en framboðsfrestur rennur út í hádeginu á mánudag. Mun Kristín taka slaginn?

Titr­ing­ur á ólík­leg­ustu stöðum

Viðtalið við Hönnu Katrínu var tekið upp í gær og hef­ur, áður en til birt­ing­ar kom, valdið nokkr­um úlfaþyt í her­búðum rík­is­stjórn­ar­flokk­anna. Einkum þó hjá Sig­ur­jóni Þórðar­syni, þing­manni Flokks fólks­ins. Hann mun inn­an tíðar taka við for­mennsku í at­vinnu­vega­nefnd þings­ins.

Gerði hann þátt­inn óbirta, að um­tals­efni á Face­book-síðu sinni í gær­kvöldi.

Allt þetta og meira til í nýjasta þætti Spurs­mála líkt og alla aðra föstu­daga.

Fylgist með upplýsandi og líflegri samfélagsumræðu hér á mbl.is alla föstudaga klukkan 14.

Systkinin Kristín Gunnarsdóttir og Þórður Gunnarsson ræða málefni líðandi stundar …
Systkinin Kristín Gunnarsdóttir og Þórður Gunnarsson ræða málefni líðandi stundar og fréttir vikunnar. Hanna Katrín Friðriksson, ráðherra atvinnuveganna situr einnig fyrir svörum í nýjasta þætti Spursmála. Samsett mynd/mbl.is/María Matthíasdóttir
mbl.is