„Landhelgisgæslan hvetur eigendur skipa og báta til að huga vel að þeim vegna þess veðurs sem gengur yfir landið. Þrátt fyrir að nú sé smástreymt má gera ráð fyrir að áhlaðandi vegna ölduhæðar geti haft áhrif í einhverjum höfnum og að þar geti myndast ókyrrð og súgur,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, spurður hvort stofnunin hafi veitt sjófarendum ráðleggingar vegna veðurofsans sem mun ganga yfir landið.

Verður einhver sérstök viðbragðsstaða vegna veðursins?
„Viðbragð Landhelgisgæslunnar er hefðbundið. Varðskipið Þór er á sjó og við erum með, flugvél og tvær þyrlur til taks. Þyrlusveitin hefur sinnt einu verkefni það sem af er degi en sveitin fór til Vestmannaeyja og sótti sjúkling sem þurfti að komast á sjúkrahús í Reykjavík. Vegna veðurs gaf sjúkraflugvél verkefnið frá sér. Þyrla LHG lenti á Hamrinum í Eyjum,“ segir Ásgeir.
Samkvæmt sjólagsspá Vegagerðarinnar er gert ráð fyrir hækkandi ölduhæð eftir því sem líður á kvöldið og má búast við að hún fari í 10 til 12 metra suðvestur af landinu í kvöld.
Þá hefur Veðurstofa Íslands þegar vakið athygli á því að það sé von á vaxandi ölduhæð og miklum áhlaðanda við Suðurland, Faxaflóa og Suðausturland.