Mikið um vatns- og foktjón á höfuðborgarsvæðinu

Veður | 5. febrúar 2025

Mikið um vatns- og foktjón á höfuðborgarsvæðinu

Stöðugt hefur verið um útköll hjá slökkviliðinu og lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í kvöld vegna óveðursins sem gengur nú yfir landið. Innivarðstjóri segir útköllunum nú fyrst fara fækkandi. 

Mikið um vatns- og foktjón á höfuðborgarsvæðinu

Veður | 5. febrúar 2025

Hér má sjá vatnselg sem myndaðist í Hafnafirði í dag.
Hér má sjá vatnselg sem myndaðist í Hafnafirði í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stöðugt hefur verið um útköll hjá slökkviliðinu og lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í kvöld vegna óveðursins sem gengur nú yfir landið. Innivarðstjóri segir útköllunum nú fyrst fara fækkandi. 

Stöðugt hefur verið um útköll hjá slökkviliðinu og lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í kvöld vegna óveðursins sem gengur nú yfir landið. Innivarðstjóri segir útköllunum nú fyrst fara fækkandi. 

Guðjón Ingason, innivarðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við mbl.is að flest verkefnin hafi verið tengd vatns- og foktjónum. Mikið hafi verið um þakkanta og þakplötur að losna af húsum.

Viðbragðsaðilar hafa sinnt ýmsum verkefnum í dag.
Viðbragðsaðilar hafa sinnt ýmsum verkefnum í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Aðspurður segist hann ekki hafa nákvæma tölu á fjölda verkefna í dag en að þau séu eitthvað í kringum 140 sem hafi dreift sér á milli viðbragðsaðila.

Önnur rauð veðurviðvörun tekur gildi klukkan átta í fyrramálið og stendur yfir til klukkan 13. 

Veðrið hefur leikið ferðamenn grátt.
Veðrið hefur leikið ferðamenn grátt. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Mikið hefur verið um foktjón í dag.
Mikið hefur verið um foktjón í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is