Dagskrá Vetrarhátíðar, sem átti að hefjast á morgun, verður frestað til föstudagsins 7. febrúar vegna veðurs.

Appelsínugul veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir höfuðborgarsvæðið á morgun, fimmtudaginn 6. febrúar, frá klukkan 3.00 til 17.00, og dagskráin verður því færð til um einn dag, að því er segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Dagskrá hátíðarinnar er óbreytt og frítt er inn á alla viðburði.
Hátíðin verður sett á Ingólfstorgi föstudaginn 7. febrúar klukkan 18.30 á Ingólfstorgi, en Einar Þorsteinsson borgarstjóri mun opna hátíðina með því að kveikja á ljóslistaverkinu Lightbattle III.
Verkið kemur frá hollenska ljósahönnunarfyrirtækinu Venividimultiplex sem sérhæfir sig í ljóslistaverkum. Um er að ræða þátttökuverk sem sýnt hefur verið víðs vegar um heim og hefur slegið í gegn, að því er segir í tilkynningunni.
Í uppsetningunni eru tveir gagnvirkir ljósbogar, með samtals sex reiðhjólum, þrjú frá gagnstæðum hliðum. Þátttakendur setjast á hjólin og hjóla eins hratt og þeir geta. Hjólin keyra upp aflið sem kveikir á LED-ljósboga og eftir því sem hjólað er hraðar því sterkari verða litirnir í ljósboganum og mynda skemmtilegt sjónarspil ljóss og lita.