Bleikur jarðarberjahristingur með dökkum súkkulaðibitum

Uppskriftir | 16. febrúar 2025

Bleikur jarðarberjahristingur með dökkum súkkulaðibitum

Langar þig í jarðarberjamjólkurhristing sem er í hollari kantinum? Þá er þetta málið, jarðarberjahristingur toppaður með dökkum súkkulaðibitum. Kristjana Steingrímsdóttir, betur þekkt undir nafninu Jana, gerði þennan dásamlega hristing í tilefni ástardaganna sem nú eru í gangi. Þetta er líka góður drykkur til að hefja sunnudaginn á og gleðja líkama og sál um leið.

Bleikur jarðarberjahristingur með dökkum súkkulaðibitum

Uppskriftir | 16. febrúar 2025

Súkkulaðið gerir gæfumunninn þegar þessi hristingur er borinn fram.
Súkkulaðið gerir gæfumunninn þegar þessi hristingur er borinn fram. Ljósmynd/Kristjana Steingrímsdóttir

Lang­ar þig í jarðarberjamjólk­ur­hrist­ing sem er í holl­ari kant­in­um? Þá er þetta málið, jarðarberja­hrist­ing­ur toppaður með dökk­um súkkulaðibit­um. Kristjana Stein­gríms­dótt­ir, bet­ur þekkt und­ir nafn­inu Jana, gerði þenn­an dá­sam­lega hrist­ing í til­efni ást­ar­dag­anna sem nú eru í gangi. Þetta er líka góður drykk­ur til að hefja sunnu­dag­inn á og gleðja lík­ama og sál um leið.

Þetta er ekta morgunverður til að njóta með ástinni.
Þetta er ekta morg­un­verður til að njóta með ást­inni. Ljós­mynd/​Kristjana Stein­gríms­dótt­ir

Jarðarberja­hrist­ing­ur toppaður með dökk­um súkkulaðibit­um

  • 1 bolli fros­in jarðarber
  • 1 fros­inn ban­ani
  • 1 msk. kolla­gen / prótein að eig­in vali
  • 2 msk. hamp­fræ
  • 1 -2 msk. möndl­u­smjör
  • 1 + 1/​4 bolli vatn
  • Dökkt súkkulaði, smátt saxað

Aðferð:

  1. Setjið allt hrá­efnið nema súkkulaðið sam­an í góðan bland­ara og blandið vel.
  2. Hellið í viðeig­andi glös.
  3. Toppið með dökku hágæða súkkulaði sem búið er að saxa smátt.
  4. Berið fram og njótið.
mbl.is