Talið er að um 30 manns hafi slasast og þar af þrír alvarlega þegar tvær lestar rákust á við Waterloo lestarstöðina í Lundúnum í dag. Önnur lestin var kyrrstæð og mannlaus. Lestin var á lítilli ferð þegar áreksturinn átti sér stað. Verið er að rannsaka orsök slyssins.