Sprengja sprakk nálægt MI6-byggingunni í London

Að sögn bresku lögreglunnar sprakk sprengja nálægt höfuðstöðvum MI6 í London. Sprengingin varð nálægt Vauxhall-brúnni sem liggur yfir Thames ekki fjarri breska þinghúsinu. Talið er að jafnvel hafi fleiri en ein sprengja sprungið. Slökkvilið kom strax á staðinn sem og lið lögreglu en lögreglan hefur lokað svæðið af.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert