Bandaríkin, Ástralía, Japan og Indland hafa myndað alþjóðlegt bandalag um að skipuleggja hjálpar- og uppbyggingarstarf á hamfarasvæðunum við Indlandhaf. George W. Bush Bandaríkjaforseti segir að flóðbylgjan sem skollið hafi á 11 lönd á annan dag jóla hafi valdið hörmungum sem tæpast sé hægt að gera sér í hugarlund hversu miklar séu.