Von á sjö flugvélum með sænska ferðamenn frá Phuket

Von er á fjölda Svía í dag heim frá Phuketeyju á Taílandi en sjö flugvélar eru á leið frá eyjunni til Svíþjóðar. Þrjár flugvélar hafa þegar flutt um 900 sænska ferðamenn frá Taílandi. Svenska Dagbladet segir í dag, að mun fleiri Svía kunni að vera saknað á hamfarasvæðunum í Asíu en til þessa hefur komið fram.

Blaðið segir að sænska utanríkisráðuneytið hafi í nokkra daga sagt að um 1500 Svía sé saknað í Taílandi og byggt það á upplýsingum frá þremur stærstu ferðaskrifstofunum, sem seldu ferðir þangað: Apollo, Fritidsresor og My Travel.

en blaðið segir að það hafi með því að ræða við minni ferðaskrifstofur og farmiðasala komist að raun um að um 3000 Svíar til viðbótar kunni að hafa verið staddir á umræddum svæðum þegar flóðbylgjan reið yfir á sunnudagsmorgun. 000.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert