Tala þeirra Dana, sem saknað var á hamfarasvæðunum við Indlandshaf, lækkaði umtalsvert í gær eftir að danska ríkislögreglustjóraembættið birti á heimasíðunni nöfn þeirra sem óttast var um.
Í gær var ekki vitað um 268 Dani á hamfarasvæðunum en þessi tala lækkaði í 82 eftir að nöfnin voru birt en þá bárust stjórnvöldum upplýsingar um að margir þeirra væru heilir á húfi.
Þeim Norðmönnum, sem óttast er um, hefur einnig fækkað og voru þeir í gærkvöldi 435.