Refsifangar og gæsluvarðhaldsfangar í á annan tug fangelsa í Frakklandi hafa skipulagt fjársöfnun til styrktar fórnarlömbum hamfaranna við Indlandshaf.
Að sögn franskra fangelsisyfirvalda hafa þegar safnast 4.000 evrur meðal fanga í þremur betrunarhúsum; Longuenesse í norðurhluta landsins, Metz í austurhlutanum og Poissy-fangelsinu fyrir utan Parísarborg.