Listi Bandaríkjastjórnar yfir 45 „staðfastar þjóðir“ ekki lengur til

Bandarískur hermaður í borginni Mosul í Írak.
Bandarískur hermaður í borginni Mosul í Írak. AP

Hvíta húsið er hætt að nota list­ann yfir hinar 45 „staðföstu þjóðir“ sem lýstu stuðningi við inn­rás Banda­ríkja­manna í Írak árið 2003, að því er greint er frá í frétt Reu­ters í dag. Hátt­sett­ur banda­rísk­ur emb­ætt­ismaður, sem ekki vildi segja til nafns, skýrði frá þessu í gær. Sagði hann að Hvíta húsið hefði sett fram ann­an og styttri lista yfir stuðningsþjóðir stríðsins í Írak, en á hon­um eru þau ríki sem lagt hafa til her­menn í Írak. Þetta hafi verið gert ein­hvern tíma eft­ir að ný bráðabirgðastjórn tók við völd­um í Írak í júní í fyrra.

Emb­ætt­ismaður­inn gat ekki sagt til um hvenær eða af hverju banda­rísk stjórn­völd hefðu ákveðið að hætta að not­ast við lista „hinna staðföstu þjóða.“

AFP-frétta­stof­an skýrði frá því seint í októ­ber í fyrra að list­inn yfir hinar „vilj­ugu þjóðir“ væri horf­inn af vefsíðu Hvíta húss­ins, en þar var á sín­um tíma hægt að skoða list­ann.

Í frétt Reu­ters er greint frá aug­lýs­ingu Þjóðar­hreyf­ing­ar­inn­ar, sem birt var í New York Times í gær. Fram kem­ur að sam­tök­in hafi birt heilsíðuaug­lýs­ingu og kraf­ist þess í henni að Ísland verði tekið af lista staðfastra þjóða og Írak­ar beðnir af­sök­un­ar á stuðningi Íslands við stefnu Banda­ríkja­stjórn­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert