Jacques Chirac Frakklandsforseti leggur til að komið verði á alþjóðlegum skatti í tilraunaskyni til að hjálpa til við að fjármagna baráttuna gegn alnæmi. Sagði hann þetta er hann ávarpaði heimsviðskiptaráðstefnuna í Davos í dag.
Hann frestaði fyrirhugaðri ferð sinni á ráðstefnuna vegna veðurs en ávarpaði ráðstefnuna á myndsímafundi. Þótti of áhættusamt að láta forsetann ferðast í þyrlu vegna slæms veðurs á svæðinu.