Alhvít jörð í Madríd

Rúta fyrir ferðamenn á götum Madrídar í morgun. Þar er …
Rúta fyrir ferðamenn á götum Madrídar í morgun. Þar er jörð nú alhvít. AP

Alhvít jörð blasti við íbúum Madrídar á Spáni þegar þeir fóru á fætur í morgun - en snjór er fremur sjaldséður í borginni. Um 10 sentimetra þykkt snjólag hafði fallið á sumum stöðum í borginni og nokkuð varð um umferðartafir af þessum völdum. Þá varð að fresta mörgum flugferðum vegna veðursins.

Tafir urðu á lestarferðum og umferðarhnútar mynduðust á götum borgarinnar. Einkasjónvarpsstöðin Telecinco sagði að ekki hefði snjóað meira í Madríd í áratug.

Um þriggja stiga frost var í borginni í nótt en í dag á að kólna þar enn frekar og er búist við allt að 9 stiga frosti þar seinna í dag.

Hætt var við um 19 flugferðir, bæði innanlands og til annarra landa, vegna veðursins, en vélarnar áttu að fara frá Barajas-flugvelli í borginni.

Einnig hefur snjóað í norðurhluta landsins og er ófært til margra afskekktra fjallaþorpa á Castilla y Leon-svæðinu af völdum þessa, að sögn spænskrar lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka