Jarðskjálfti upp á 5,0 á Richter í Pakistan

Jarðskjálfti upp á 5,0 á Richter reið yfir suðvesturhluta Pakistan í dag, fjórum dögum eftir að mikill jarðskjálfti reif yfir norðurhluta landsins og Kasmírhérað. Ekki hafa borist fregnir af manntjóni eða skemmdum af völdum þessa skjálfta. Jarðskjálftinn sem reið yfir á laugardaginn var mun öfugri, eða 7,6 á Richter og varð að minnsta kosti 33.000 manns að bana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert