Þriggja barna móður var bjargað í dag úr rústum heimilis síns í Kasmír 105 klukkustundum eftir jarðskjálftana miklu í Suður-Asíu. Um hundrað manns fögnuðu ákaft þegar konan, Rashida Farooq, var loks dregin upp úr rústunum eftir fimm tíma björgunaraðgerð tyrkneskra björgunarsveitarmanna.
Eiginmaður konunnar var skýjum ofar og sagðist nú geta hafið nýtt líf með lífsförunaut sínum og þakkaði Tyrkjum ákaft. Fimm ára stúlka skreið óvænt út úr hruninni byggingu í höfuðborg pakistanska hluta Kasmír, Muzaffarabad, en fólk var þar í óða önn að leita í rústum að eftirlifendum.
„Hún er mjög þreytt en þó með meðvitund. Þetta er kraftaverk,“ sagði frændi stúlkunnar og bar hana út í sjúkrabíl. Staðfest tala látinna í Pakistan er 23.000 en skjálftarnir eru verstu náttúruhamfarir í sögu landsins.