Mikil sprenging varð í vopnabirgðastöð í Afganistan í dag og létust tveir og 45 slösuðust. 177 hús skemmdust í sprengingunni sem varð í þorpinu Jabalussaraj í Parwan-héraði. Í birgðastöðinni voru vopn og skotfæri sem öryggissveitir í landinu hafa náð af afgönskum vígamönnum. Talið er að neisti frá rafmagnskapli hafi komist í skotfærin.