Fimm Palestínumenn voru skotnir til bana í Gaza borg í dag. Er ekki vitað hverjir árásarmennirnir eru en árásin átti sér stað í nágrenni heimilis leiðtoga Hamas, Ismail Haniya. Að sögn vitna hófu byssumennirnir skothríð á ökutækisem fimm manns voru í og létust þeir allir.