Gordon B. Hinckley forseti mormónakirkjunnar í Utah í Bandaríkjunum lést um helgina 97 ára að aldri. Hinckley var fimmtándi forsetinn í 177 ára sögu kirkju Jesú Krists hinna síðari daga heilögu og gegndi því embætti frá árinu 1995.
Svonefnt tólfpostularáð velureftirmann Hinckleys eftir að útför hans lokinni á næstu dögum. Sá postuli, sem lengst hefur þjónað þar, er Thomas S. Monson, sem er áttræður.