Yfir 69 þúsund látnir

AP

Stjórnvöld í Kína greindu frá því í dag að 69.019 hafi látist í skjálftanum sem reið yfir landið þann 12. maí sl. Alls er 18.627 enn saknað og eru litlar líkur taldar á að þeir finnist á lífi. 373.573 slösuðust í jarðskjálftanum og eftirskjálftum sem riðu yfir landið í kjölfar stóra skjálftans þann 12. maí. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert