Fjölmargir nemendur voru skotnir til bana í skotárás sem gerð var í iðnskóla í Kauhajoki í Finnlandi. Ríflega tvítugur nemandi við skólann hóf skyndilega að skjóta á samnemendur sína upp úr klukkan átta í morgun. Umsátri lögreglu kringum skólann lauk nú fyrir stundu þegar byssumaðurinn beindi byssunni að eigin höfði og reyndi að fremja sjálfsmorð án árangurs. Hann var fluttur á Háskólasjúkrahúsið í Tampere til aðhlynningar. Hann mun vera alvarlega slasaður.
„Staðan er mjög alvarleg og fórnarlömbin eru mörg,“ sagði Antti Rantakokko, borgarstjóri Kauhajoki, í samtali við Helsingen Sanomat.
Á vef danska sjónvarpsmiðilsins TV2 News er haft eftir borgarstjóra Kauhajoki að a.m.k. fjórir séu látnir. Frá spítalanum sem annast um fórnarlömbin berast þau boð að færri en tuttugu séu í hópi særðra og látinna.
Fréttaveitan AFP hefur eftir Ahti Yli-Mannila, slökkviliðsstjóra bæjarins að margir séu látnir en að enn eigi eftir að fá staðfesta tölu um fjölda fórnarlamba enda sé skólinn stór.
Samkvæmt TV2 News geisar nú eldur í iðnskólanum. Slökkviliðsfólki var meinað að fara inn í bygginguna meðan enn stóð ógn af árásarmanninum. Um leið og fréttir bárust af því að hann væri látinn fór slökkviliðið inn í skólann og náði stjórn á eldinum. Lögreglan óttast hins vegar að byssumaðurinn hafi komið fyrir sprengju í skólanum áður en hann svipti sig lífi.
Samkvæmt vef finnska útvarpsins hafa á síðustu dögum ratað inn upptökur þar sem gefur að líta ungan mann með skammbyssu. Síðasta myndskeiðið birtist á vefnum fyrir fimm dögum, en elsta myndskeiðið er þriggja vikna gamalt. Ekki hefur enn verið staðfest að maðurinn í myndskeiðunum sé árásarmaðurinn, en á You Tube upplýsir hann að hann eigi heima í Kauhajoki.
„Lífið allt er stríð og þjáning. Þú munt berjast einn í þínu persónulega stríði. Þetta er stríð,“ skrifaði 22 ára gamall maður frá Kauhajoki áður en hann setti myndskeiðin inn á You Tube. Mr Saari, eins og maðurinn kallar sig á vefnum, birti opið bréf um stríð, einsemd og sársauka og myndaði sjálfan sig þar sem hann var að skjóta með Walther P22 skammbyssu. Það er sama vopn og hinn bandaríski Cho Seung-hui notaði í skotárás sínum í Virginia Tech á síðasta ári.
Mr. Saari var síðast innskráður á You Tube fyrir rúmum þremur klukkustundum eða stuttu áður en skotárásin í iðnskólanum í Kauhajoki hófst.