Fundu bein nálægt heimili mannræningjans

Lögreglumenn að störfum.
Lögreglumenn að störfum. Reuters

Lögreglan í Kaliforníu fann í gær hluta úr beini nálægt heimili Phillips Garridos sem hélt ungri konu fanginni í 18 ár. Talsmaður lögreglunnar sagði í gær of snemmt að segja til um hvort beinið væri úr manni eða dýri.

Lögreglan hóf í gær að grafa upp garð við heimili mannræningjans og voru hundar látnir leita á svæðinu. Kannað er hvort Garrido hafi tengst morðum allt að 10 kvenna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert