Tina Dugard, móðursystir Jaycee Lee Dugard, hefur greint frá því að endurfundir Jaycee og tveggja dætra hennar og móður Jaycee hafi verið mjög hjartnæmir og glaðlegir. Þetta kom fram í sjónvarpsþættinum „Good Morninga America” á ABC sjónvarpsstöðinni.
Tina segir fyrstu daga Jaycee með móður sinni hafa einkennst af öryggiskennd, bjartsýni og gleði og að þær hafi gert alls konar venjulega hluti saman eins og að spila borð- og tölvuspil. Þá hafi móðir Jaycee fléttað hár hennar og þær horft saman upp í himininn. Hún segir Jaycee vera fallega og greinda konu sem hagi sér eins og eðlileg 29 ára kona.
Dætur hennar Starlet, fimmtán ára, og Angel, ellefu ára, séu einnig fallegar og greindar stúlkur sem kunni að lesa og skrifa þótt þær hafi aldrei gengið í skóla. Þá sé greinilegt að Jaycee og dætur hennar séu mjög nánar.
Jaycee var rænt er hún var ellefu ára og haldið á heimili ræningja sinna í átján ár. Þar fæddi hún mannræningjanum Phillip Garrido dæturnar.