Breska lögreglan rannsakar nú andlát ungs manns sem varð þekktur á einni nóttu í Bretlandi árið 1997 þegar hann varð yngsti lottóvinningshafi landsins, þá 17 ára gamall.
Stuart Donnelly fannst látinn á heimili sínu í gærmorgun í Castle Douglas í Dumfries og Galloway. Hann var 29 ára gamall.
Hann var einn af 13 sem deildu með sér fyrsta vinningnum, sem voru 25 milljónir punda, í nóvember árið 1997, en hann fékk tæpar tvær milljónir punda í sinn hlut, að því er fram kemur á fréttavef breska ríkisútvarpsins.
Það vakti mikla athygli á sínum tíma þegar Donnelly fagnaði með því að drekka kók, þar sem hann var of ungur til að skála í kampavíni.
Hann keypti nýtt hús handa sjálfum sér og foreldrum sínum auk þess sem hann keypti sér aðgang að heiðursstúku skoska knattspyrnuliðsins Celtic. Þá gaf hann Yorkhill sjúkrahúsinu í Glasgow 15.000 pund þar sem yngri bróðir hans var í meðferð vegna erfðagalla.
Hann viðurkenndi í viðtali árið 2003 að gríðarlegt álag hefði fylgt því að vinna allan þennan pening aðeins 17 ára gamall. Hann sagðist hafa átt erfitt með að venjast allri athyglinni. Fólk hefði jafnvel slegið upp tjaldbúðum fyrir framan heimili sitt.
Donnelly skrifaði á samskiptasíðuna Bebo að hann væri hræddur við að blanda geði við annað fólk. Hann tók fram á síðunni að það helsta sem hann gerði yfir daginn væri að sofa, horfa á sjónvarpið, hlusta á tónlist og hanga á netinu. Hann sagðist í raun gera allt annað en að þurfa að fara út úr húsi.
Skv. fyrstu upplýsingum er ekki talið að andlát Donnellys hafi borið að með saknæmum hætti.