Verða að rífa sumarhús sitt

Rústir hinnar fornu borgar Kurion í nágrenni við Limassol á …
Rústir hinnar fornu borgar Kurion í nágrenni við Limassol á Kýpur. mbl.is/Ómar Óskarsson

Dómstóll í London hefur komist að þeirri niðurstöðu að bresku pari beri að rífa
sumarhús sitt á norðurhluta Kýpur. Niðurstaða dómstólsins gæti haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir þúsundir annarra sumarhúsaeigenda á eyjunni.

Utanríkisráðherra Tyrklands hefur gagnrýnt niðurstöðuna og varar við því að hún geti spillt fyrir hugsanlegum friðarræðum og sameiningaviðræðum á eyjunni sem skipt var í tvennt árið 1974.

Demetris Christofias, forseti Kýpurgrikkja, sagði niðurstöðuna bæði „lagalega og stjórnmálalega“ mikilvæga. Sagði hann niðurstöðuna vera „svar til tyrkneska hluta eyjunnar sem vilji hafna eignarrétti.“

Kýpur hefur verið deilt í tvennt síðan Tyrkir hertóku nyrsta þriðjung eyjunnar árið 1974 til þess að koma í veg fyrir að eyjan væri sameinuð Grikklandi á ný.

Sumarhúsaeigendurnir David og Linda Orams þurfa í framhaldi af dómnum að skila landinu þar sem hús þeirra stendur til upphaflegra eigenda landsins, Meletios Apostolides, og jafnframt greiða honum bætur.

Apostolides fjölskyldan flúði til suðurhluta eyjunnar árið 1974 og Meletios Apostolides hóf málareksturinn fyrir dómstólum á Kýpur. Áfrýjunardómstóllinn í London staðfesti með úrskurði sínum niðurstöðu bæði kýpverska dómstólsins og Evrópuréttardómstólsins. Hann gæti verið fordæmisgefandi fyrir þúsundir sumarhúsaeigenda sem hafa byggt sér sumarhús á norðurhluta Kýpur.

„Þetta býr til nýjan lagalegan ramma í þeim tilfellum þar sem útlendingar hafa í leyfisleysi nýtt sér jarðir annarra,“ sagði  Constantis Candounas, lögmaður Apostolides, þegar niðurstaða dómsins lá ljós fyrri. „En auðvitað þarf að skoða hvert og eitt mál sérstaklega.“



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert