Hengdi sig í fangaklefa

Frakki sem var ákærður fyrir tvöfalt morð fannst í dag látinn í fangaklefa sínum. Svo virðist sem hann hafi hengt sig með því að nota lakið á beddanum sínum.

Jean-Pierre Treiber var í einangrun en eftirlit með honum var hert verulega eftir að honum tókst að flýja úr fangelsi sl. september. Upphófst þá mikið fjölmiðlafár í Frakklandi en Treiber fannst ekki fyrr en tveimur mánuðum síðar.

Treiber hélt statt og stöðugt fram sakleysi sínu en réttarhöld yfir honum áttu að hefjast síðla í apríl. Hann var ákærður fyrir að hafa myrt Geraldine Giraud og vinkonu hennar Katia Lherbier árið 2004.

Af Evrópulöndunum er ein hæsta tíðni sjálfsvígs fanga í Frakklandi eða 20 sjálfsvíg fyrir hverja 10 þúsund fanga. Vegna þessa eru flest rúmföt í frönskum fangelsum úr efni sem ekki er hægt að rífa í sundur en slík rúmföt var ekki að finna í klefa Treiber.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert