Tvær níu ára gamlar norskar stúlkur drukknuðu þegar alda hreif þær með sér þar sem þær voru að leika sér í fjöru við Kristiansund á vesturströnd Noregs í gærkvöldi.
Stúlkurnar voru ásamt þriðju stúlkunni að leik á ströndinni þegar þær lentu allar í sjónum. Fólk í nágrenninu heyrði hróp og var þá hafin leit og fannst ein stúlkan fljótlega og hinar tvær fundust nokkru seinna í sjónum. Þær voru fluttar á sjúkrahús en lífgunartilraunir báru ekki árangur.
Önnur stúlkan sem fórst var tvíburasystir stúlkunnar sem bjargaðist.