Horfin stúlka fannst látin á heimili sínu

Auglýsingaskilti í Mexíkó borg þar sem auglýst var eftir hinni …
Auglýsingaskilti í Mexíkó borg þar sem auglýst var eftir hinni fjögurra ára gömlu Paulette Gebara Farah, sem að sögn fjölskyldu hennar hvarf sporlaust í síðasta mánuði. Reuters

Fjögurra ára stúlka sem hvarf sporlaust í síðasta mánuði og auglýst hefur verið mikið eftir í Mexíkó borg fannst látin í herberginu sínu. Frá þessu er greint á vef breska ríkisútvarpsins. Þar er haft eftir Alberto Babaz, ríkissaksóknara, að stúlkan, Paulette Gebara Farah, hafi kafnað.

Fyrirskipuð hefur verið rannsókn á málinu og er móðir stúlkunnar sú sem helst liggur undir grun. Tilkynnt var um hvarf Paulette Gebara Farah 22. mars sl. og í framhaldinu var auglýst eftir henni á dreifimiðum og plakötum víðs vegar um höfuðborgina, auk þess sem fréttir um hvarfið rataði á netið og í erlenda fjölmiðla.

Litla stúlkan átti erfitt með gang og var ómálga. Fjölskylda hennar tilkynnti lögreglunni um hvarf hennar og hélt því fram að stúlkan hefði horfið sporlaust af heimili fjölskyldunnar í Huizquilcan-úthverfinu í Mexíkó borg.

Fjölskyldan og vinir hennar hrintu þegar af stað auglýsingaherferð með það að markmiði að finna litla stúlkuna. Hengd voru upp plaköt víðs vegar um borgina með myndum af litlu ljóshærðu, bláeygðu stúlkunni.

Þegar lögreglan hugðist í gær sviðsetja aðstæðurnar daginn sem Farah hvarf fannst lík stúlkunnar óvænt. Því hafði verið komið fyrir í svörtum plastpoka sem skorðaður var undir rúmi hennar. 

Að sögn Albertos Babaz, ríkissaksóknara, beinist rannsókn lögreglunnar nú að Lisette Farah, móður stúlkunnar.  Spurður hvers vegna lögreglan hafi ekki fundið lík stúlkunnar fyrr segir Babaz lögregluna hafa einblínt á að leita að stúlkunni utanhúss.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert