Harmleikur í Danmörku

Frá Jótlandi.
Frá Jótlandi.

Þrír létust og 36 eru slasaðir eftir að vagn með ferðamönnum valt nærri ströndinni í Mandø á Suður-Jótlandi. Sjö farþeganna voru fluttir til aðhlynningar á sjúkrahúsum í Esbjerg, Óðinsvéum og Aabenraa.

Vagninn var dreginn áfram af traktor og valt í sterkum hliðarvindi þegar traktorinn keyrði ofan í holu.

Farþegarnir voru eldriborgarar en þeir voru á ferð með ferðaþjónustufyrirtækinu  Sælhunden sem ekur ferðamönnum frá Mandø í útsýnisferðir til sandfjörunnar í Koresand, suðvestur af bænum.

Daninn Niels Christian Nielsen kom að slysstaðnum en hann segir nokkra farþeganna hafa kramist undir vagninum.

Nielsen segir þá alla hafa verið eldriborgara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert