Bandarískur hermaður, sem lá undir grun um að hafa lekið myndbandi sem sýndi áhöfn bandarískrar Apache árásarþyrlu ráðast á almenna borgara í Bagdad, hefur verið ákærður. Tveir starfsmenn Reuters fréttastofunnar féllu í árásinni.
Sem kunnugt er var myndbandið birt á síðunni Wikileaks í apríl og kom Ríkisútvarpið að frágangi þess og birtingu.
Bradley E. Manning, sem er óbreyttur hermaður, hefur verið í haldi í herfangelsi í Kuwait frá því í síðasta mánuði. Samkvæmt tilkynningu sem Bandaríkjaher í Bagdad gaf út hafa verið gefnar út tvær ákærur á hendur honum vegna ósæmilegrar hegðunar.
Fyrri ákæran er fyrir að hafa brotið reglugerðir hersins með því að „flytja leynilegar upplýsingar yfir í einkatölvu sína og að setja upp ósamþykktan hugbúnað á leynilegu tölvukerfi,“ að því er fram kemur í tilkynningunni.