Moat svipti sig lífi

Lögreglumenn í nágrenni bæjarins Rothbury í gær.
Lögreglumenn í nágrenni bæjarins Rothbury í gær. Reuters

Raoul Moat, sem lögregla á Englandi leitaði að í viku eftir að hann myrti unnusta fyrrum sambýliskonu sinnar, skaut sig til bana í nótt eftir nokkurra klukkustunda langt umsátur lögreglu.

Vegfarendur sáu Moat á gangi við árbakka í grennd við bæinn Rothbury á norðausturhluta Englands í dag. Þegar lögregla kom að lá Moat á árbakkanum og beindi haglabyssu að höfði sér. Lögregla ræddi við manninn næstu klukkustundirnar og reyndu að fá hann til að gefast upp. Moat skaut sig síðan klukkan 1:15 í nótt að breskum tíma eftir sex klukkustunda umsátur. Hann var fluttur á sjúkrahús en var úrskurðaður látinn á þriðja tímanum í nótt.

Raoul Thomas Moat, sem var 37 ára frá Newcastle, var látinn laus úr Durham fangelsinu á fimmtudag í síðustu viku þar sem hann sat inni fyrir líkamsárás. Tveimur dögum síðar skaut hann fyrrum unnustu sína og særði hana alvarlega og myrti unnusta hennar. Þá skaut hann á lögregluþjón og særði hann alvarlega. 

Fjöldi lögreglumanna leitaði að Moat næstu dagana, aðallega í bænum Rothbury og nágrenni þar sem talið var að Moat hefðist við. Þá voru nokkrir vitorðsmenn hans handteknir en Moat virðist hafa skipulagt aðgerðir sínar vel áður en hann slapp úr fangelsinu.

Raoul Moat.
Raoul Moat. Reuters
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert