Fjögurra ára gamall drengur hefur fundist látinn í þurrkara á heimili sínu í Ashbourne í Derbyskíri í Bretlandi.
Lögreglan segir að lýst hafi verið eftir dregnum um klukkan 10:30 að staðartíma. Leit hófst þegar í stað og var einnig leitað úr lofti. Um klukkustund síðar fannst drengurinn látinn á heimili sínu, að því er fram kemur á vef breska útvarpsins.
Lögreglan segir málið vera í rannsókn og vill ekki gefa upp nánari upplýsingar.