Svipti sig lífi í beinni útsendingu

Ungur sænskur karlmaður svipti sig í dag lífi í beinni útsendingu á netinu. Lögreglan fékk að sögn sænskra fjölmiðla tilkynningu um hvað væri að gerast en kom of seint að manninum og hann var þá látinn. 

„Ég hef séð ýmislegt á netinu en þetta var það versta sem ég hef nokkru sinni séð," hefur vefur Aftonbladet eftir ónafngreindum manni, sem sá útsendinguna. 

Haft er eftir talsmanni lögreglunnar, að einhverjir kunningjar mannsins hafi vitað um áform hans en ekki reynt að stöðva hann. Talsmaðurinn segir að lögreglan geti ekki stjórnað hvernig fólk noti samskiptasíður á netinu. Þá segir hann að margir, sem sáu útsendinguna á netinu, hafi ekki gert sér grein fyrir því, að manninum var alvara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert