Lögregluyfirvöld í Oklahomaríki handtóku snemma í dag tvo karlmenn sem grunaðir eru um fjórar skotárásir á föstudag. Þrír létust og tveir særðust í árásunum.
Mennirnir sem heita Jake England og Alvin Watts eru 19 ára og 32 ára. Þeir voru handteknir í Tulsa, þar sem árásirnar áttu sér stað. Þeir verða ákærðir fyrir þrjú morð og tvær manndrápstilraunir.
Öll fórnarlömb mannanna voru þeldökk á hörund en England og Watts eru hvítir. Talið er að árásirnar tengist kynþáttahatri, en það hefur ekki fengist staðfest.