Hefur ekki óskað eftir hæli

Við sendiráð Bandaríkjanna í Peking
Við sendiráð Bandaríkjanna í Peking AFP

Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng yfirgaf sendiráð Bandaríkjanna í Peking í morgun af fúsum og frjálsum vilja en hann er í rannsókn á sjúkrahúsi í borginni, samkvæmt frétt kínversku ríkisfréttastofunnar Xinhua. Bandarísk stjórnvöld segja að Chen hafi ekki óskað eftir hæli í Bandaríkjunum og að kínversk stjórnvöld hafi heitið því að Chen verði komið í öruggt skjól.

Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er komin til Kína og samkvæmt frétt AFP fréttastofunnar á Chen að hafa sagt við Clinton að hann vildi kyssa hana, er þau ræddu saman í síma í dag. 

Chen flúði í bandaríska sendiráðið sl. fimmtudag en hann hefur verið í stofufangelsi undanfarin ár. 

Chen Guangcheng er einkum þekktur fyrir að afhjúpa mannréttindabrot embættismanna í Shandong sem þvinguðu a.m.k. 7.000 konur til að fara í ófrjósemisaðgerð eða í fóstureyðingu eftir allt að átta mánaða meðgöngu, í því skyni að tryggja að lög um eitt barn á fjölskyldu væru virt. Afhjúpunin vakti mikla athygli víða um heim og bandaríska tímaritið Time taldi Chen á meðal hundrað áhrifamestu manna í heiminum árið 2006 vegna baráttu hans gegn mannréttindabrotum í Kína.

Chen fæddist í þorpi í Shandong 12. nóvember 1971 og varð blindur í æsku. Hann gekk í skóla fyrir blint fólk og nam um tíma lögfræði í háskóla án þess að útskrifast en hélt áfram að læra lögfræði upp á eigin spýtur.

Chen varð fyrst þekktur í júní 2005 þegar hann hóf hópmálsókn og sakaði embættismenn í borginni Linyi í Shandong um að hafa neytt konur til að fara í ófrjósemisaðgerð eða í fóstureyðingu seint á meðgöngu, meðal annars með barsmíðum og árásum á heimili þeirra. Uppljóstrunin varð til þess að Chen og fjölskyldu hans var haldið í stofufangelsi í hálft ár.

Chen handtekinn í júní 2006, sakaður um brot á umferðarlögum og eignaspjöll. Hann neitaði sök og margir telja að yfirvöldin hafi ákært hann til að þagga niður í honum. Hann var síðan dæmdur í fjögurra ára fangelsi.

Chen lauk afplánun fangelsisdómsins í september 2010 og hefur honum verið haldið í stofufangelsi frá þeim tíma allt þar til hann slapp úr fangelsinu.

Chen Guangcheng missti sjónina í barnæsku.
Chen Guangcheng missti sjónina í barnæsku. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert