Meðal gagna sem gefin hafa verið gerð opinber í tengslum við rannsókn saksóknara á morðinu á Trayvon Martin er myndband úr öryggismyndavél þar sem hann sést kaupa sér sælgæti. Skömmu síðar var hann skotinn til bana af manni við nágrannavörslu.
George Zimmerman er ákærður fyrir manndráp en atburðurinn átti sér stað í Sanford í Flórída. Zimmerman heldur því fram að hann hafi skotið piltinn í sjálfsvörn.