Óttast fellibyl í Flórída

Ísak telst enn vera stormur, en óttast er að hann …
Ísak telst enn vera stormur, en óttast er að hann nái styrk fellibyls á næstu dögum. Íbúar Haítí og Dóminíska lýðveldisins reyndu með öllum tiltækum ráðum að verjast storminum. ERIKA SANTELICES

Hitabeltisstormurinn Ísak gekk yfir fátækustu svæði Haítí snemma í morgun. 

Einnig var gefin út opinber fellibylsviðvörun í suðurhluta Flórída, en óttast er að Ísak nái þangað fyrir ársþing repúblikana sem haldið verður í Tampa á mánudag.

Vindhviður stormsins ná allt að 95 km á klukkustund, en búist er við að hann gangi yfir austanverða Kúbu síðar í dag. Sérfræðingar fellibyljastofnunar Bandaríkjanna spá því að stormurinn verði að fellibyl á morgun á leið sinni til Flórída.

Samkvæmt upplýsingu af vef fréttastofunnar AFP er Ísak mjög nærri því að ná styrk fellibyls. Stormurinn gekk yfir svæðið sem varð verst úti í jarðskjálfta á svæðinu 2010, en þar búa þúsundir manna enn í tjaldbúðum og rústum húsa. 

Birgja sig upp af matvælum

Haítí var fátækasta ríki á vesturhveli jarðar áður en jarðskjálftinn reið yfir árið 2010, en 250.000 manns létust í skjálftanum. 400.000 manns búa enn í tjaldbúðum í námunda við hina gjöreyðilögðu höfuðborg landsins, Port-au-Prince.

Í aðvörun fellibyljastofnunarinnar kemur fram að hætta sé á „lífshættulegum flóðum og aurskriðum“ á eyjunni Hispanjólu, sem tilheyrir Haítí og Dóminíska lýðsveldinu, auk þess sem varað var við hitabeltisstorminum á austanverðri Kúbu og Bahama-eyjum.

Götur Port-au-Prince voru auðar og mannlausar seint í gærkvöldi, en fyrr um daginn mynduðust langar raðir fyrir utan matvöruverslanir þar sem íbúar birgðu sig upp af matvælum. 

„Við vorum ekki reiðubúin fyrir fellibylinn. Þegar rignir stöndum við undir götóttum tjöldum. Hér eru mörg börn og við vitum ekki hvert við ættum að flýja ef okkur verður gert að rýma svæðið,“ segir Martine, starfsmaður í tjaldbúðum sem hýsa mörg þúsund fjölskyldur. Þær hafa hvorki aðgang að salernum né drykkjarvatni, og hafa yfirvöld á Haítí verið harðlega gagnrýnd fyrir vanrækslu gagnvart fjölskyldunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert