Ísak æðir í átt að Louisiana

Hitabeltisstormurinn Ísak fyrir nokkrum dögum.
Hitabeltisstormurinn Ísak fyrir nokkrum dögum. AFP

Hitabeltisstormurinn Ísak er nú á mörkum þess að verða að fellibyl, en hann æðir nú í átt að borginni New Orleans í Louisianaríki.

Storminum fylgir mikil rigning og er búist við talsverðum flóðum á svæðinu.

Íbúar ríkisins urðu illilega fyrir barðinu á fellibyl fyrir sjö árum, þegar fellibylurinn Katrína fór þar yfir og olli gríðarlegri eyðileggingu. Um 1.800 manns létust þá og tugþúsundir misstu heimili sín.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert