Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, mun kl. 14 í dag að íslenskum tíma gefa yfirlýsingu frá Hvíta húsinu um það hættuástand sem gæti skapast vegna hitabeltisstormsins Ísaks. Neyðarástandi hefur verið lýst fyrir í Louisiana en talið er að Ísak verði orðinn að fellibyl er hann gengur yfir Mexíkóflóa síðar í dag.