Forseti Bandaríkjanna hélt ávarp í dag þar sem hann varaði við fellibylnum Ísak sem stefnir nú á Mexíkóflóa. Hvatti hann fólk til að fara eftir fyrirmælum stjórnvalda og lagði áherslu á að fellibylurinn gæti haft skelfileg áhrif, eyðileggingu og flóð í för með sér.