Bo væntanlega ákærður

Bo Xilai
Bo Xilai AFP

Kín­verski stjórn­mála­maður­inn Bo Xilai verður vænt­an­lega ákærður fyr­ir að reyna að forða eig­in­konu sinni frá ákæru fyr­ir morð, að sögn sér­fræðinga í kjöl­far þess að fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóri Chongq­ing-borg­ar, sem áður var hægri hönd, Bo, hef­ur verið ákærður fyr­ir ýmis brot.

Eig­in­kona Bo Xilai var í síðasta mánuði dæmd til dauða fyr­ir að myrða breska kaup­sýslu­mann­inn Neil Heywood. Gu Kailai hlaut skil­orðsbund­inn dauðadóm, sem yf­ir­leitt er breytt í lífstíðardóm í Kína.

Fast­lega er gert ráð fyr­ir að Bo verði fang­elsaður. Bo hef­ur ekki sést op­in­ber­lega svo mánuðum skipt­ir.

Bo var leiðtogi komm­ún­ista­flokks­ins í Chongq­ing og borg­ar­stjóra þar í borg, en hann var svipt­ur embætt­um sín­um þegar rann­sókn máls­ins hófst.

Gu játaði fyr­ir dóm­in­um að hafa byrlað Neil Heywood eit­ur á hót­el­her­bergi hans í Chongq­ing í nóv­em­ber. Aðstoðarmaður henn­ar var dæmd­ur sek­ur sem vitorðsmaður og hlaut 9 ára fang­els­is­dóm. 

Heywood átti í viðskipt­um við son þeirra hjóna, Bo Guagua. Svo virðist sem þau viðskipti, þar sem 130 millj­ón­ir sterl­ings­punda eru sagðar hafa átt að skipta um eig­end­ur, hafi farið úr bönd­um og Heywood í kjöl­farið hótað bréf­lega að koma Bo yngri á kné. Gu bar fyr­ir dómi að hún hafi fengið tauga­áfall í kjöl­far deilna son­ar henn­ar við Heywood.

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert