Rastafjöll eirðu ekki öryggisráði SÞ

Öryggisráðið í bráðabirgðasalnum í New York í dag.
Öryggisráðið í bráðabirgðasalnum í New York í dag. mbl.is/afp

Fellibylurinn Sandy eirði engu sem á vegi hans varð. Ekki einu sinni öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, því mikið tjón hlaust af völdum flóðvatns í salarkynnum þess. 

Nauðbeygt flutti ráðið af þessum sökum starfsemi sína í bráðabirgðaheimkynni en þar var í dag haldinn fundur sem boðað hafði verið til með litlum fyrirvara. Tilefnið var að framlengja umboð friðargæslusveitanna í Sómalíu um viku.

Upphaflega var fundur þessi á dagskrá sl. mánudag en var frestað þar sem þá krepptist glær og rastafjöll nálguðust New York hraðbyri. Hermt er að vatnstjón á jarðhæð byggingar Sameinuðu þjóðanna sé umtalsvert. Byggingin hefur verið lokuð alla vikuna.

Eyðilegging er gríðarleg á New York-svæðinu.
Eyðilegging er gríðarleg á New York-svæðinu. mbl.is/afp
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert