Obama: Enn langt í land

Barack Obama forseti Bandaríkjanna, segir að enn sé langt í land þar til lífið farið að ganga sinn vanagang á Austurströnd Bandaríkjanna eftir að fellibylurinn Sandy reið yfir fyrr í vikunni.

Obama hóf kosningaferðalag sitt á ný í dag eftir að hafa gert nokkurra daga hlé á henni til þess að stýra aðgerðum vegna Sandy sem kostaði að minnsta kosti 103 lífið í Bandaríkjunum.

Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu á þriðjudag og skoðanakannanir benda til þess að litlu munar á fylgi frambjóðendanna en Obama virðist þó hafa örlítið forskot á Romney í flestum þeirra ríkja þar sem stuðningur við hvorugan er afgerandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert