Obama mættur í Hvíta húsið

Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, er kominn á ný í Hvíta húsið eftir að hafa fagnað sigri með stuðningsmönnum sínum í heimaborg forsetans Chicago.

Með Obama í för voru eiginkona hans, Michelle og dætur þeirra, Sasha 11 ára og Malia 14 ára.

Obama fór með sigur af hólmi í forsetakosningunum í gær en hann hlaut 303 kjörmenn en andstæðingur hans  Mitt Romney fékk 206.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert